top of page
Search
arnar7

Hvað var tígurinn í Dunkirk að gera á Akureyri?


Gort lávarður skipaði mönnum sínum að hörfa undan sókn Þjóðverja og stefna á Dunkirk

Árið 1940 kom breskur herforingi í eftirlitsferð til Íslands. John Standish Surtees Prendergast Verekerv gekk jafnan undir nafninu Gort lávarður (Lord Gort), stundum kallaður „Tiger“ Gort af óbreyttum hermönnum. Hann varð æðsti maður breska heraflans í Evrópu í upphafi seinni heimsstyrjaldarinnar eftir að Neville Chamberlain forsætisráðherra Breta skipaði hann til starfans.


Gort fór ásamt herliði sínu til Frakklands í september árið 1939 til stuðnings franska hernum ef til innrásar Þjóðverja kæmi sem svo varð raunin í maí 1940. Bretarnir áttu við ofurefli að etja í Frakklandi. Að ráði Gort dró breska herliðið sig til baka, til Dunkirk á norðurströnd Frakklands þaðan sem breskir hermenn voru fluttir á fjölmörgum smábátum og skipum til Englands.



Lord Gort var leikinn af Cyril Raymond í Hollywood-myndinni Dunkirk frá árinu 1958

Æ síðan hefur Gort lávarður ýmist verið gagnrýndur eða hylltur fyrir ákvörðun sína um að hörfa og koma mönnum sínum heim. Að öðrum kosti hefðu um 340 þúsund breskir hermenn líkast til verið stráfelldir af vígreifum nasistum.


Tæpum fimm mánuðum eftir atburðarásina í Dunkirk steig Gort á land í Reykjavík. Hann dvaldist hér á landi um tveggja vikna skeið í lok október og hafði aðsetur á Hótel Borg. Þó er vitað að hann ferðaðist út fyrir borgarmörkin á meðan dvöl hans stóð. Fréttatilkynningar í íslenskum blöðum voru á einn veg – ástæður heimsóknar hans til Íslands voru ókunnar.


Skjalfest er að Gort kom til Akureyrar mánudaginn 21. október. Í dagblaðinu Íslendingi sem kom út 25. október segir; Gort lávarður sem var yfirhershöfðingi Breta í Frakklandi s.l. vor, er kominn hingað til lands. Til Akureyrar kom hann á mánudaginn var, og hafði brezka setuliðið ýmsan viðbúnað til að gera móttökur hans sem virðulegastar.



Íslensku dagblöðin greindu frá heimsókn Gort til Íslands

Grenndargralið komst á snoðir um heimild í netheimum sem sýnir að Gort heimsótti herbúðir Breta í Hörgárdal. Í herdagbók Hallamshire-herdeildarinnar bresku sem staðsett var á Djúpárbakka segir; General The Viscount Gort V.C. Inspector General of Training visits area (October 1940). Gort lauk Íslandsferð sinni þegar hann kom heim til Englands í byrjun nóvember.

Í desember 1940 kom út kynningar- og /eða áróðursmyndband á vegum breska hersins um Ísland og veru hersins hér á landi. Í upphafi myndbandsins situr sjálfur Gort lávarður við skrifborð og tilkynnir að hann sé nýkominn frá Íslandi. Í myndbandinu má sjá setuliðsmenn við leik og störf á Íslandi og samskipti þeirra við innfædda.



Brot úr myndbandinu sem sýnir setuliðsmann á verði í Hörgárdal

Gaman er að velta fyrir sér hvort föruneyti Gort hafi tekið kvikmyndavélar með sér til Íslands. Í það minnsta má greina myndbrot í myndbandinu sem tekið er í Hörgárdal. Hvort það er tekið upp á meðan heimsókn hans í búðunum í dalnum stóð skal ósagt látið. Hvað heimsókn hans til Akureyrar varðar, þá er ekki ósennilegt að hann hafi heilsað upp á setuliðsmenn í herbúðunum við Rangárvelli og/eða Lónsá í Kræklingahlíð. Svo skemmtilega vill til að Kræklingahlíð skartar sínu fegursta í umræddu myndbandi.


Kann að vera að tilgangur ferðalags Gort lávarðar hingað til lands hafi öðrum þræði verið að útbúa áróðursmyndband um dvöl breska hersins á Íslandi fyrir almenning í Bretlandi? Var ætlunin með myndatöku af íslenskri stórfjölskyldu í Kræklingahlíð í sparifötunum sú að sýna fram á góð samskipti Íslendinga við breska herinn? Erfitt er að segja til um það. Vísbendingar eru þó um að myndatakan í Kræklingahlíð gæti hafa farið fram á sama tíma og Gort lávarður var staddur á Akureyri.


Framhald…

127 views0 comments

Recent Posts

See All

Comments


bottom of page